Fara í innihald

Gloucester

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 26. desember 2021 kl. 23:48 eftir Snævar (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. desember 2021 kl. 23:48 eftir Snævar (spjall | framlög)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Gloucester

Gloucester (borið fram [/ˈɡlɒstər/]) er borg og höfuðbær í Gloucestershire-sýslunni á Suðvestur-Englandi. Borgin liggur nærri landamærunum við Wales og á Severn-ánni og er um það bil 51 km norðaustan Bristol og 72 km suðvestan Birmingham. Íbúar voru um 127.000 árið 2015.

Gloucester var stofnuð árið 48 e.Kr. af Rómverjum sem Glevum og henni var gefin fyrsta stofnskráin árið 1155 af Hinriki 2.. Nú á dögum er aðalatvinnugrein borgarinnar þjónusta og þar eru staðsettar margar fjármála- og viðskiptastofnanir. Borgin er heimili bankans Cheltenham & Gloucester og var mikilvæg fyrir geimiðnaðinn.

  Þessi Englandsgrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.