Fara í innihald

Síderít

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Síderít
Eðalsteinsskorið síderít

Síderít tilheyrir hópi karbónata og er sjaldgæft á Íslandi.

Á Íslandi finnst síderít sem smákúlur, geislóttar að innan. Finnst einnig sem plötulaga kristallar. Gulleitt, brúnleitt eða rauðbrúnt. Oft með glergljáa.

  • Efnasamsetning: FeCO3
  • Kristalgerð: trígónal
  • Harka: 4-4½
  • Eðlisþyngd: 3,7-3,9
  • Kleyfni: góð á þrjá vegu

Útbreiðsla

[breyta | breyta frumkóða]

Síderít finnst á sprunguflötum í basalti þar sem heitt vatn hefur leikið um eða í samblandi við málmsteindir við jaðra djúpbergsinnskota.

  • Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2