Bob Moran
Róbert „Bob“ Moran er skáldsagnapersóna Henri Vernes. Bob er Frakki sem barðist sem sjálfboðaliði í Breska flughernum RAF í seinni heimsstyrjöldinni. Eftir stríðið ferðast hann um heiminn sem sjálfstætt starfandi blaða- og ævintýramaður. Bob er hár og sterklega vaxinn, er liðtækur í ýmsum bardagaíþróttum og kann að beita margs konar vopnum. Hann talar mörg tungumál reiprennandi og í upphafi margra bóka er hann staddur á framandi stöðum. Býr í íbúð við Voltaire-götu í París. Bob á einnig höll í Feneyjum og miðaldakastala í Dardogne héraði í Frakklandi. Hann ekur um á Jaguar.
Aðrar persónur
[breyta | breyta frumkóða]Bill Ballantine
[breyta | breyta frumkóða]William „Bill“ Ballantine. Besti vinur Bobs. Bill er Skoti, rauðhærður, tveir metrar á hæð og heljarmenni að vexti. Hann var vélvirki í breska flughernum og vann við flugvél Bob Morans. Býr á Skotlandi og ræktar hænsni. Á einnig íbúð í London. Drekkur viskí með þjóðarstolti. Bill kemur fyrir í bókum 1, 5, 9, 10, 11, 12, 14, 16, 19, 20, 21, 22, 23, 24, 25, 26 og 27
Prófessor Aristide Clairembart
[breyta | breyta frumkóða]Prófessor Aristide Clairembart er lágvaxinn öldungur, framúrskarandi ern með geithafursskegg og tindrandi augu sem skinu skært undir þykkum gleraugunum í stálumgerð. Hann kemur fyrir í bókum 2, 5, 13, 14, 20, 21, 23, 24 og 25
Frú Durant
[breyta | breyta frumkóða]Frú Durant er húsvörður í húsi Bob Morans við Voltairegötu.
Frank Reeves
[breyta | breyta frumkóða]Frank flaug sprengjuflugvélum í seinni heimstyrjöldinni fyrir bandaríska flugherinn. Hann er milljónamæringur og vinur Bob Morans. Hann kemur fyrir í bókum 1, 2, 17 og 24
Sir Archibald Baywatter
[breyta | breyta frumkóða]Archibald er aðalvarðstjóri Scotland Yard. Hann er á sextugsaldri. Hann kemur fyrir í bókum 11, 12, 14, 19, 22, 23, 25 og 27
Jouvert ofursti
[breyta | breyta frumkóða]Jouvert er yfirmaður í deild 2 í frönsku leyniþjónustunni. Hann kemur fyrir í bókum 8, 18 og 25
Tatjana Orloff
[breyta | breyta frumkóða]Tatjana „Tanja“ Orloff er systurdóttir Herra Mings, Gula skuggans. Hún er kínverskur blendingur, átti rússneskan föður og kínverska móður. Tanja er tuttugu og tveggja eða þriggja ára, með dökka húð, há kinnbein, svart hár sem sló á bláleitum lit og féll eins og tagl niður á bak. Augu eins og tvær svartar stjörnur. Hún unnir Bob Moran hugástum. Tanja kemur fyrir í bókum 12, 14, 16, 19, 22, 23, 25 og 27
Guli skugginn
[breyta | breyta frumkóða]Herra Ming, öðru nafni Guli skugginn, er Mongóli og með ofurgreind. Hann er um tveir metrar á hæð klæddur svörtum fötum með prestaflibba. Hann er horaður en með langa og vöðvastælta handleggi og geysistórar hendur en sú hægri er gervihendi úr stáli með fínni plasthúð í sama lit og hörundið. Hann er með kringlótt andlit, gult á lit með ofurlítinni grænni slikju, með nauðrökuðum skalla og flatt nef sem skagaði fram á milli framstæðra kinnbeina. Munnurinn varaþunnur og sterkar, hvassar tennur. Augun ómennsk, undir skásettum brúnum minntu þau á svo gullmola eða tvo ógegnsæja tópassteina. Herra Ming stefnir á að leggja vestræna menningu í rúst svo allir menn geti lifað í friðsæld í þessum fagra blómagarði sem plánetan er. Hann beitir margvíslegum brögðum til að ná fram áætlun sinni, launmorð og hryðjuverk auk margra flókinna áætlana. Hefur uppgötvað leyndarmálið um eilíft líf, klónum manna og tímaflakk. Hann er með flokk launmorðinga á sínum snærum, dakóíta vopnuðum rýtingum. Herra Ming stjórnar samtökunum „Gamla Asía“. Hann kemur fyrir í bókum 12, 14, 16, 19, 22, 23, 25, 27 og 28
Roman Orgonetz
[breyta | breyta frumkóða]Roman Orgonetz, einnig þekktur sem Artúr Greenstreet eða „Maðurinn með gulltennurnar“ er leigunjósnari í þjónustu árásarveldanna, samviskulaus og djöfullega slægur. Hann er stór, herðabreiður, þungur og „með frámunalega andstyggilegt andlit, sem að lit og þéttleika minnti einna helzt á hlaup með stórum ljósrauðum kufungi í miðjun, sem átti að heita nef, útstandandi, sljó augu og þykkar opnar varir, svo skein í logagylltan tanngarðinn, og yfir þessu öllu skalli, jafnfægður og marmarakúla.“ Hann kemur fyrir í bókum 8 og 11.
Bækur
[breyta | breyta frumkóða]Bækur um Bob Moran voru gefnar út af Prentsmiðjunni Leiftri hf. í íslenskri þýðingu. (Innan sviga er upprunalegt heiti, útgefandi og útgáfuár). Magnús Jochumsson þýddi flestar sögurnar. Kápumyndir eru eftir Pierre Joubert.
- Ungur ofurhugi (La vallée infernale, Gérard & Co, 1953) 1960
- Ævintýri á hafsbotni (La galère engloutie, Gérard & Co, 1954) 1960
- Græna vítið (Sur la piste de Fawcett, Gérard & Co, 1954) 1961
- Eldklóin (La griffe de feu, Gérard & Co, 1954) 1962
- Ógnir í lofti (Panique dans le ciel, Gérard & Co, 1954) 1962
- Fjársjóður sjóræningjans (L'héritage du flibustier, Gérard & Co, 1954) 1963
- Rauða perlan (Le sultan de Jarawak, Gérard & Co, 1955) 1963
- Kjarnorkuleyndarmálið (Les mangeurs d'atomes, Gérard & Co, 1961 ) 1964
- Smyglaraskipið (Trafic aux Caraïbes, Gérard & Co, 1961) 1964
- Njósnarinn með þúsund andlitin (L'espion aux cent visages, Gérard & Co, 1960) 1965
- Maðurinn með gulltennurnar (L'homme aux dents d'or, Gérard & Co, 1960) 1965
- Guli skugginn (L'Ombre Jaune, Gérard & Co, 1959) 1966
- Eyðumerkurrotturnar (Les faiseurs de désert, Gérard & Co, 1955) 1966
- Hefnd gula skuggans (La revanche de l'Ombre Jaune, Gérard & Co, 1959 ) 1967
- Dalur fornaldardýranna (La vallée des brontosaures, Gérard & Co, 1955) 1967
- Refsing Gula skuggans (Le châtiment de l'Ombre Jaune, Gérard & Co, 1960) 1968
- Stálhákarlarnir (Les requins d'acier, Gérard & Co, 1955) 1968
- Vin “K” svarar ekki (Oasis K ne répond plus, Gérard & Co, 1955) 1969
- Endurkoma Gula skuggans (Le retour de l'Ombre Jaune, Gérard & Co, 1960) 1970
- Svarta höndin (Echec à la Main Noire, Gérard & Co, 1957) 1970
- Njósnarinn ósýnilegi (Formule X 33, Gérard & Co, 1962) 1971
- Tvífarar gula skuggans (Les sosies de l'Ombre Jaune, Gérard & Co, 1961) 1971
- Augu Gula skuggans (Les yeux de l'Ombre Jaune, Gérard & Co, 1962) 1972
- Leyndardómur Mayanna (Le secret des Mayas, Gérard & Co, 1956) 1972
- Arfur Gula skuggans (L'héritage de l'Ombre Jaune, Gérard & Co, 1963) 1973
- Leynifélag löngu hnífanna (Le club des longs-couteaux, Gérard & Co, 1962) 1973
- Hermenn Gula skuggans (Les guerriers de l'Ombre Jaune, Gérard & Co, 1965) 1974
- Kóróna drottningarinnar (La Couronne de Golconde, Gérard & Co, 1959) 1975