Fara í innihald

Morðið á Abraham Lincoln

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Teikning af morðinu á Abraham Lincoln.

Morðið á Abraham Lincoln átti sér stað þann 14. apríl 1865 þegar Abraham Lincoln þáverandi forseti Bandaríkjanna var skotinn til bana af John Wilkes Booth í Ford-leikhúsinu í Washington, D.C. þar sem hann var á leiksýningunni Our American Cousin.[1] John Wilkes Booth var leikari og var hliðhollur Suðurríkjasambandinu. Eftir að hafa skotið Lincoln hoppaði Booth niður á leiksviðið og hrópaði „Sic semper Tyrannis“ áður en hann hljóp út.[2] Lincoln lést degi síðar.[3] John Wilkes Booth var á flótta í 12 daga áður en hann var skotinn til bana þann 26. apríl.

Þann 9. febrúar 1956 var sýndur sjónvarpsþátturinn I've Got a Secret þar sem hinn tæplega 96 ára gamli Samuel J. Seymour afhjúpaði að hann væri síðasti einstaklingurinn á lífi sem var á leiksýningunni en hann var 5 ára þegar hann fór á umrædda leiksýningu.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Thorolf Smith (26. nóvember 1963). „Þegar Lincoln var myrtur“. Morgunblaðið. bls. 17; 19.
  2. Jón Þ. Þór (2016). „Abraham Lincoln“. Bandaríkjaforsetar. Hafnarfjörður: Urður bókafélag. bls. 161. ISBN 978-9935-9194-5-8.
  3. Thorolf Smith (1959). Abraham Lincoln: ævisaga. Reykjavík: Setberg. bls. 286. ISBN 9789935210197.
  Þessi sögugrein sem tengist Bandaríkjunum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.